25.02.1976
Neðri deild: 64. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2168 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

168. mál, flugvallagjald

Fjmrh. (Matthías Á Mathiesen):

Herra forseti. Í fjárl. fyrir árið 1976 er gert ráð fyrir, að tekjur ríkissjóðs af flugvallagjaldi nemi 235 millj. kr. á þessu ári. Ég gerði grein fyrir því við 1. umr. fjárl. að til þess að sú áætlun stæðist yrði að framlengja gildistíma lagaákvæðanna um flugvallagjald, en þau renna út um næstu mánaðamót.

Flugvallagjald var sem kunnugt er sett með lögum nr. 11/1975, um ráðstafanir í efnahagsog fjármálum. Tilgangur þeirra lagaákvæða var lagt á sem líður í þeim almennu ráðstöfunum í efnahagsmálum sem gerðar voru þá, en hins vegar til þess að þeir, sem um flugvelli ferðuðust, greiddu eitthvert gjald fyrir þá þjónustu sem þar er veitt.

Flugvallagjald það, sem nú er innheimt, nemur 2500 kr. fyrir hvern fullorðinn farþega frá Íslandi til annarra landa, en vegna ferða innanlands hefur gjaldið almennt numið 350 kr. fyrir fullorðna, þó þannig að lægra gjald er innheimt vegna ferða til og frá öðrum flugvöllum en í Reykjavík og Keflavík.

Með frv. því, sem hér er til umr., er lagt til að Flugvallagjaldíð frá Íslandi verði framlengt ótímabundið, en verði lækkað verulega frá því sem nú er. Lagt er til að gjaldið verði fyrir utanferðir 1500 kr. í staðinn fyrir 2500 kr. og verður þá gjaldið eftir þessa breytingu hliðstætt sams konar gjöldum í nágrannalöndum okkar. Í farþegaflugi innanlands og til Færeyja og Grænlands er hins vegar lagt til að flugfélögunum verði gert að greiða 200 kr. fyrir hvern farþega. Flugfélögunum er heimilt að hækka verð farmiða í innanlandsflugi sem gjaldinu nemur og skal gjaldið vera ósérgreint í farmiðaverðinu. Noti flugfélögin heimild sina til að hækka farmiðaverð sem gjaldinu nemur mun farmiðaverð, eins og það er í dag til og frá Reykjavík, lækka um 150 kr. við þessa breytingu. Í þessu sambandi leyfi ég mér að benda á að áætlaðar tekjur ríkisins af flugvallagjaldi í innanlandsflugi voru áætlaðar 40 millj. kr.

Ég sé ekki ástæðu, herra forseti, til að fjölyrða um frv. vísa til grg. og legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. Ég leyfi mér að vona að hv. n. og hv. þd. sjái til þess að þetta frv. verði að lögum fyrir n.k. mánaðamót.