01.03.1976
Efri deild: 68. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2257 í B-deild Alþingistíðinda. (1850)

163. mál, almenn hegningarlög

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Frv. það til breyt. á almennum hegningarlögum, sem hér er lagt fyrir hv. Ed., fjallar einungis um viðauka við 6. gr. almennra hegningarlaga og er borin fram vegna fyrirhugaðrar fullgildingar Íslands á milliríkjasamningi frá 14. des. 1973 um varnarráðstafanir og refsingar vegna glæpa gegn einstaklingum er njóta alþjóðlegrar verndar, þ. á m. sendierindrekum. Er lagt til að unnt verði að refsa eftir íslenskum hegningarlögum fyrir þá háttsemi sem greinir í fyrrnefndum milliríkjasamningi, enda þótt hún hafi átt sér stað utan íslenska ríkisins og án tillits til þess hver er að henni valdur.

Ísland hefur undirritað fyrrgreindan milliríkjasamning og að ósk utanrrn. var hegningarlaganefnd falið að gera könnun á því hverjum ákvæðum íslenskra laga þyrfti að breyta eða hvernig ákvæði þyrfti að setja svo að unnt væri að fullgilda umræddan milliríkjasamning. Niðurstaða n. varð sú, að ekki þyrfti að koma til lagabreyt. annarra en þess viðauka við almenn hegningarlög, sem hér er lagt til að settur verði. Brtt. þessi er flutt sem sérstakt frv. svo að unnt verði að láta meðferð þess fylgja meðferð væntanlegrar þáltill. um fullgildingu nefnds milliríkjasamnings sem utanrrh. mun á næstunni væntanlega bera fram.

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og allshn.