01.03.1976
Neðri deild: 71. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2277 í B-deild Alþingistíðinda. (1876)

28. mál, kafarastörf

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. allshn. fyrir að hafa skilað þessu áliti. Ég tel það mikla nauðsyn að mál. sem almenn samstaða er um, séu afgr. á þeim tíma þegar minna er að gera um afgreiðslu þingmála en vill vera þegar líður að þinglokum. Ég vil líka segja það, að ég tek undir þær breyt. sem fyrir liggja. Ég tel þær til bóta og mun því styðja þær. Ég endurtek þakklæti mitt til n. og vona að hv. d. láti þetta frv. ná fram að ganga sem fyrst.