09.03.1976
Sameinað þing: 60. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2447 í B-deild Alþingistíðinda. (2037)

176. mál, atvinnuleysistryggingar

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Áður en ég gef orðið vil ég taka það fram út af ummælum hæstv. heilbr: og trmrh. að fyrirspyrjanda var skýrt frá því er stóð í bréfi hæstv. ráðh. til mín, en hann taldi það, sem til var vísað, ekki vera fullnægjandi svar við sinni fsp. og óskaði þess að fsp. yrði rædd þar sem hann þyrfti að fá miklu viðtækari upplýsingar í málinu. Þá vil ég líka geta þess að hæstv. heilbr.- og trmrh. var þetta kunnugt áður en kom til þessa fundar í dag.