09.03.1976
Sameinað þing: 60. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2453 í B-deild Alþingistíðinda. (2045)

159. mál, sjálfvirkt símkerfi um sveitir landsins

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég er ekki að vanþakka það að fjölgað sé símalínum á Vesturlandi. En ég held því fram að þetta hafi stórversnað á einu eða tveimur síðustu árum, versnað stórum. Ég á hér við sjálfvirka kerfið sem var þegar komið á er hæstv. ráðh. tók við. Og ég segi: Ef nýjar línur eiga að kosta það að gamla kerfið ónýtist, þá held ég að við verðum að láta okkur nægja gamla kerfið og varast að bæta við nýjum línum.