15.03.1976
Efri deild: 75. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2530 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)

200. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Með frv. þessu á þskj. 417 er lagt til að frestur sá, sem Kjaradómur hefur nú til að kveða upp dóm í yfirstandandi kjaradeilu BSRB og fjmrh., verði framlengdur til 1. apríl n.k. Áður hefur frestur í kjaradeilu þessari tvisvar verið framlengdur með sérstökum lögum, sbr. lög nr. 90/1975 og lög nr. 3/1976, og hafa þá báðir aðilar verið sammála um að leita eftir slíkri frestun.

Enn hefur ekki náðst samkomulag í áður nefndri deilu. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur óskað þess að nýr frestur verði veittur til þess að reyna að ná samkomulagi í þeirri deilu sem hér um ræðir. Ríkisstj. hefur fallist á að gera þá tilraun og er því frv. það flutt sem hér er til umr.

Herra forseti. Slík frv. hafa gjarnan fengið greiða afgreiðslu og ekki verið talin þörf á því að vísa þeim til n. Ég leyfi mér um leið og ég þakka hæstv. forseta góða fyrirgreiðslu, að leggja til að þessu máli verði vísað að lokinni umr. til 2. umr., en ekki til n., og vænti þess að samkvæmt venju geti sú fundur og þriðji fundur um málið átt sér stað í hv. þd. nú í dag, þannig að málið gæti fengið lokaafgreiðslu á þingi í Nd. síðari hluta dags.