22.03.1976
Neðri deild: 83. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2696 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)

195. mál, skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Fjmrh. (Matthías A. Mathiesen):

Herra forseti. Um leið og ég vil þakka hv. fjh.- og viðskn. afgreiðslu hennar á þessu máli, þá vil ég staðfesta það sem kom fram í ræðu frsm. n., hv. 4. þm. Norðurl. v., varðandi verðlaun til handa Hannesi Péturssyni rithöfundi á s.l. ári.