04.11.1975
Sameinað þing: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (231)

297. mál, fólk og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson) :

Herra forseti. Sú fsp., sem ég flyt til hæstv. utanrrh. um fólk og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, er í 4 liðum. Hún er, að ég hygg, það skýr, að ekki þarf að fylgja henni úr hlaði með mörgum orðum. Ég vænti þess að hæstv. ráðh. sé tilbúinn að svara henni.