05.04.1976
Efri deild: 85. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2973 í B-deild Alþingistíðinda. (2464)

231. mál, eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. er einnig flutt vegna þess samkomulags sem ríkisstj. átti þátt í milli aðila vinnumarkaðarins um lausn hinnar almennu kjaradeilu. Það. sem hér er um að ræða, er að Alþýðusamband Íslands, Vinnuveitendasamband Íslands og Vinnumálasamband samvinnufélaganna hafa komið sér saman um að lífeyrissjóðir á samningssviði þessara samtaka ásamt nokkrum öðrum lífeyrissjóðum taki að sér að veita lífeyrisþegum sínum, sem rétt eiga skv. l. nr. 63/1971, um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögunum, sérstaka upphót árin 1976 og 1977, þannig að lífeyrisgreiðslur þeirra verði betur verðtryggðar en hingað til hefur verið. Forsenda þessa samkomulags er sú breyt. á lögum um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum sem hér er lögð fram.

Auk fyrrgreindrar uppbótar, sem lífeyrissjóðunum sjálfum er ætlað að standa straum af skv. sérstökum reglum, er í samkomulaginu gert ráð fyrir að öldruðum félögum stéttarfélaga, sem verða öryrkjar, verði tryggður lífeyrisréttur að uppfylltum tilteknum skilyrðum svipuðum þeim er gilda um elli- og makalífeyri, en hingað til hafa lögin einungis tekið til þessara tveggja bótategunda.

Útgjöld skv. núgildandi lögum eru áætluð 208 millj. kr. þetta ár og ber Atvinnuleysistryggingasjóður 3/4 útgjaldanna, en ríkissjóður 1/4. Með samþykkt þessa frv. mundu útgjöld þessara aðila vaxa lítillega vegna hinna nýju ákvæða um örorkulífeyri, og sennilega hafa breytingarnar einnig í för með sér að menn leita réttar síns fyrr en áður og nýjar umsóknir geta borist frá mönnum sem ekki hafa haft fulla vitneskju um rétt sinn, eins og oft vill verða. Áætlað hefur verið að útgjöld til uppbótargreiðslna, sem lífeyrissjóðunum er ætlað að bera skv. þessu frv., geti numið 250 millj. kr. á þessu ári.

Um greinar frv. get ég verið fáorður, en vitna til þeirra og aths. eins og bær eru prentaðar í frv. Í 1. og 2. gr. eru ákvæði um þá réttindabót sem ég hef minnst á, en í 3. gr. frv. er gerð grein fyrir því á hvern hátt greiðslum skuli skipt milli lífeyrissjóða og vitnað til þess samkomulags sem gert var á milli aðila vinnumarkaðarins og ég gat um í upphafi. Hér er því um að ræða þátt í samkomulagi um lausn kjaradeilunnar í febrúar. Legg ég til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. heilbr.- og trn.