05.04.1976
Neðri deild: 87. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2974 í B-deild Alþingistíðinda. (2466)

Varmaður tekur þingsæti

Forseti (Magnús T. Ólafsson):

Borist hefur svolátandi bréf:

„Reykjavík, 5. apríl 1976. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geti sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Gunnar Sveinsson kaupfélagsstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Jón Skaftason,

4. þm. Reykn.

Til forseta Nd.

Gunnar Sveinsson kaupfélagsstjóri hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfa.