26.04.1976
Neðri deild: 90. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3249 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)

207. mál, ríkisreikningurinn 1974

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur rætt frv. á fundi sínum, og eins og fram kemur á þskj. 523 mælir n. með því að frv. verði samþykkt. Frv. hefur verið borið saman við ríkisreikninginn og þannig staðreynt að tölur þess eru í samræmi við reikninginn. Athugasemdir yfirskoðunarmanna Alþ. gefa ekki tilefni til annars en að reikningurinn verði samþykktur, enda telja þeir svör við fsp. sínum í öllum tilvikum fullnægjandi.