28.04.1976
Efri deild: 91. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3297 í B-deild Alþingistíðinda. (2728)

210. mál, orlof

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég er ekki reiðubúinn til þess að ræða þetta frv. málefnalega á þessu stigi af þeim sökum að ég finn ekki brtt. sem ég hafði persónulega komið á framfæri við þá n. sem um þetta frv. hefur fjallað. Ég áskil mér því fullan rétt á því að koma fram með brtt. í hv. deild við 3. umr.