29.04.1976
Neðri deild: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3367 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

211. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Virðulegi forseti. Það frv., sem við höfum hér til meðferðar nú og komið er frá hv. Ed., er í framhaldi af þeim breytingum sem gerðar voru á sjóðakerfi sjávarútvegsins með lögum sem samþykkt voru hér fyrr í vetur um útflutningsgjald af sjávarafurðum. Aðalatriði þessa frv. eru að í stað tekjuákvæða í lögum viðkomandi sjóða, sem nú eru úr gildi fallin, komi ný ákvæði sem vísi til laga um útflutningsgjald. Þetta var samþ. með shlj. atkv. þeirra Ed.-manna og sjútvn. þessarar hv. d. mælir með því að frv. verði samþ. óbreytt.