03.05.1976
Neðri deild: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3475 í B-deild Alþingistíðinda. (2878)

231. mál, eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. sem er leiðrétting við 2. gr. frv., en þar hefur slæðst inn meinleg prentvilla í 4. mgr. Þar stendur „76 ára að aldri“, en á að vera 70 ára og breytingin fjallar um það. Nm. í þessari d. tóku eftir þessari breytingu rétt eftir að þeir höfðu gengið frá nál. sínu og því flyt ég þessa brtt. til leiðréttingar.