03.05.1976
Neðri deild: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3476 í B-deild Alþingistíðinda. (2882)

223. mál, Norræni fjárfestingarbankinn

Fram. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun Norræna fjárfestingarbankans. Mál þetta er komið frá Ed., þar sem það var samþ., shlj., og leggur n. til að frv. verði samþ. í þessari hv. deild.