04.05.1976
Neðri deild: 97. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3571 í B-deild Alþingistíðinda. (2945)

266. mál, fjáröflun til landhelgisgæslu, ríkisfjármál o.fl.

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Um það atriði, sem fsp. tveggja síðustu ræðumanna beindist að, verður fjallað í verðlagsnefnd og af réttum verðlagsyfirvöldum. Þegar ákvörðun verður tekin um álagningu, þ. á m. um það hvort eða að hve miklu leyti eigi að breyta álagningu vegna þessa vörugjalds, þá koma ýmis atriði til skoðunar og hljóta að koma til skoðunar. Ég er þess vegna ekki á þessu stigi reiðubúinn til að gefa neina yfirlýsingu um það efni sem þeir settu fram.