11.11.1975
Sameinað þing: 13. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (307)

13. mál, fasteignamatslög og lög um sambýli í fjölbýlishúsum

Fyrirspyrjandi (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. skýr og greinargóð svör. Þau ættu að sannfæra þingheim um að málið er til rækilegrar meðferðar hjá ríkisstj., og væntanlega verður okkur öllum að ósk okkar um að frv. um þessi efni bæði, sem við höfum hér báðir á minnst, verði flutt svo fljótt sem kostur er.