10.05.1976
Neðri deild: 104. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3955 í B-deild Alþingistíðinda. (3267)
115. mál, íslensk stafsetning
Svava Jakobsdóttir:
Forseti. Ég þarf ekki að fjölyrða mjög um þetta mál. Hv. síðasti ræðumaður og frsm. fyrir okkar sameiginlega nál., minni hl., hefur fjallað ítarlega um það nál. og gert hv. Alþ. grein fyrir því. Ég hlýt þó að taka undir þau orð sem hann sagði í upphafi ræðu sinnar, að ég harma það mjög að þetta mál skuli tekið til umr. síðla á næturfundi þegar aðeins örfáir þm. eru inni. Hér er um afdrifaríkt málefni að ræða sem varðar allan almenning og raunar ríkisfjármálin líka. En ég hlýt að taka til máls vegna þess að flestum hv. þm. er kunnugt um það, að ég er einn af þessum óhamingjusömu fylgismönnum zetunnar. En ég fæ ekki séð að unnt sé að fjalla um þetta þmfrv. án þess að taka fyrst afstöðu til frv. hæstv. ráðh. um það hvernig stafsetningarreglur skuli settar. Ég hlýt að harma það að meiri hl. hefur sýnt óbilgirni í þessu máli og ábyrgðarleysi. Það liggur í augum uppi að ef þetta frv. verður samþ., þá er búið að fremja vissan verknað, þá er búið að festa í sessi vissa starfsaðferð og hv. Alþ. hefur þar með ekki verið gefinn kostur á að velja milli þeirra tveggja starfsaðferða, sem liggja fyrir Alþingi.
Ég er fylgjandi þeirri aðferð sem lögð er til í frv. hæstv. ráðh., og meginástæðan er sú, að ég tel að reynslan hafi sýnt það á þessu þingi og þinginu í fyrra og gott ef ekki á þinginu þar áður að það er ákaflega óheppilegt og engum til góðs að alþm. séu að fjalla um einstök stafsetningaratriði og einstaka stafi í stafrófinu. Eitt er nauðsynlegt í stafsetningarreglum og í íslensku máli, að þar ríki festa og þar sé ekki verið að hlaupa úr einu í annað. Við getum ekki átt það á hættu vegna skólamanna, vegna nemenda og vegna almennings að tilviljunarkenndur þingmeirihl. sé hverju sinni að breyta stafsetningarreglunum, setja inn z eitt árið, afnema hana það næsta, setja hana aftur inn það þriðja. Og ef þannig á að fara einnig með í og y og ei og guð veit hvað, þá liggur í augum uppi hvernig þetta muni enda. Ringulreiðin blasir við, og ég hygg að því muni hv. þm. Sverrir Hermannsson ekki neita.
Ég ítreka það, forseti, að ef þetta frv. verður samþykkt, þá er um leið verið að samþykkja þá aðferð, sem á að hafa um setningu stafsetningarreglna, en ég tel mikilvægara að Alþ. ákvarði fyrst og fremst aðferðina áður en hún tekur tillit til einstakra stafsetningaratriða. Og ég vil eindregið vara hv. alþm. og hv. z-menn hér á þingi við því að reyna að nota Alþ. sem persónulegt hagsmunatæki sitt.