11.05.1976
Neðri deild: 106. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4003 í B-deild Alþingistíðinda. (3315)

115. mál, íslensk stafsetning

Lúðvík Jósepsson:

Forseti. Ég vil ekki á neinn hátt leggja stein í götu þess að þetta mál fái fullnaðarafgreiðslu á þessu þingi. Ég tel að það sé fyllilega tryggt þó að 3. umr. um málið sé ekki knúin fram nú á þessum fundi. Það er af þeim ástæðum sem ég segi nei við því að veita afbrigði til að knýja málið fram á þessum fundi sem ég sé enga ástæðu til að verði og reynt að koma í veg fyrir að ákveðnir menn, sem vilja taka þátt í afgreiðslu málsins, geti fengið að taka þátt í afgreiðslu þess, og þar skiptir aðeins um einn eða tvo daga.