11.05.1976
Sameinað þing: 89. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4018 í B-deild Alþingistíðinda. (3331)

32. mál, fjáraukalög 1973

Frsm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur haft til athugunar frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1973. Hún hefur borið saman fjárlög og ríkisreikning fyrir árið 1973 og leggur til einróma að frv. verði samþ. óbreytt.