12.05.1976
Neðri deild: 107. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4127 í B-deild Alþingistíðinda. (3450)

274. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Frsm. meiri hl. (Lárus Jónsson):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins. N. varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Þeir hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason og Lúðvík Jósepsson munu skila séráliti. Nál. meiri hl. er á þskj. 736. Meiri hl. fjh.- og viðskn. leggur til að frv. verði samþ. í því formi sem það er, en undir það nál. skrifar Eyjólfur Konráð Jónsson með fyrirvara.