13.11.1975
Sameinað þing: 15. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Friðjón Þórðarson) :

Forseta hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 12. nóv. 1975.

Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., form. þingflokks Alþfl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Eggert G. Þorsteinsson, 4. landsk. þm., er á förum til útlanda til að sitja þing Sameinuðu þjóðanna og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varam. landsk. þm. Alþfl., Bragi Sigurjónsson bankastjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Þorv. Garðar Kristjánsson,

forseti Ed.

Bragi Sigurjónsson bankastjóri hefur áður setið á Alþ. og kjörbréf hans verið athugað. Ég býð hann velkominn til starfa.