13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4172 í B-deild Alþingistíðinda. (3553)

274. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Gylfi Þ. Gíslason:

Hæstv. forseti. Við umr. gerði ég grein fyrir því að ég flyt á þskj. 739 till. um breyt. á 3. gr. frv., og er sú brtt. shlj. brtt. sem þeir fluttu 1971, þegar lögin voru sett, hæstv. núv. fjmrh. og hæstv. núv. sjútvrh. Eftir að ég flutti till. hefur komið fram önnur till. sama efnis á þskj. 763 frá hv. þm. Ellert B. Schram. Þar eð ég tel till. hv. þm. Ellert B. Schram betur orðaða og skýrari en hina gömlu till. flokksbræðra hans tek ég mína till. til baka og mun greiða atkv. með till. hv. þm. Ellerts B. Schram.