13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4177 í B-deild Alþingistíðinda. (3576)

132. mál, dýralæknar

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins kynna þetta frv. af því að flm. þess eru í Ed. Hér er um að ræða skiptingu á tveimur dýralæknisumdæmum, þ.e. Strandasýslu og Rangárvallasýslu. Er gert ráð fyrir, að ef frv. þetta verður að lögum, þá verði gildistaka þess miðuð við í jan. næsta ár og að sjálfsögðu háð því að fjárveitingar verði til starfanna, en nauðsyn ber til að gera þessar breytingar.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. landbn.