13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4196 í B-deild Alþingistíðinda. (3599)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Þessum umræðum er lokið. Það verður að halda áfram fundi d. um önnur dagskrármál. Ég bið hv. þdm. að hafa það hugfast þegar hér er veitt orðið utan dagskrár til þess að ræða um meðferð mála eða tiltekinn fundartíma í tilteknu máli, að þeir misnoti ekki það að gefið sé orðið með því að fara að ræða um önnur mál þó fróðleg séu.