14.10.1975
Efri deild: 4. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

4. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft til athugunar og rætt á fundi sínum frv. til l. um breyt. á l. nr. 102 27. des. 1973, um veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv., en vil vísa til þess sem fram kom í framsöguræðu hæstv. sjútvrh. við 1. umr. málsins. Sjútvn. leggur einróma til að frv. þetta verði samþ. óbreytt.