13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4203 í B-deild Alþingistíðinda. (3608)

258. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér er til umr., um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja fjallar um veigamiklar breytingar á gildandi lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Helstu breytingar, sem í frv. felast, eru að lagt er til að Bandalagið fái takmarkaðan verkfallsrétt við gerð aðalkjarasamnings og jafnframt falli niður þau sjálfvirku tengsl sem verið hafa milli kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og fjmrh. og kjarasamninga heildaraðila almenna vinnumarkaðarins.

Ríkisstj. ákvað í okt. s.l. að hefja viðræður við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Bandalag háskólamanna um verkfallsréttarmálið til að kanna hvort unnt yrði að finna samkomulagsgrundvöll er allir aðilar gætu sætt sig við.

Eftir langvarandi og ítarlegar viðræður aðila náðist samkomulag milli viðræðunefndar ríkissjóðs og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja frá 1. apríl s.l. um nýjan aðalkjarasamning og samkomulagsdrög um verkfallsrétt o.fl. í 18 liðum. Ríkisstj. samþykkti þessi drög fyrir sitt leyti og ákvað að láta semja lagafrv. það, er hér liggur fyrir, á grundvelli þeirra, enda var meginsjónarmiðum hennar um takmörkun og form verkfallsréttarins til skila haldið í drögunum. Helstu efnisatriði samkomulagsdraganna, sem frv. þetta er byggt á, eru eftirfarandi:

Í 1. gr. samkomulagsins er ákvæði þess efnis að fram fari endurskoðun á lögum um réttindi og skyldur, æviráðning verði þrengd frá því sem nú er, en þeir, sem þegar hafi æviráðningu, haldi henni. í þessu sambandi vil ég taka fram að samkv. dómi Hæstaréttar frá 12. des. 1974 hafa stjórnvöld nokkuð frjálsar hendur um að ráða starfsfólk með gagnkvæmum uppsagnarfresti. Sú almenna skoðun, að allir ríkisstarfsmenn hafi æviráðningu eða æviráðningarrétt, er því á misskilningi byggð.

Í 2. gr. er kveðið á um að stefnt skuli að því að ný kjarasamningalög taki gildi frá og með 1. júlí 1977 að því er aðalkjarasamning varðar og megi segja honum upp miðað við þann dag. Verkfallsheimild fylgi nýjum aðalkjarasamningi sem gerður er eftir það. Ákvæði um sérkjarasamninga taki þó gildi þegar í stað og ákvæði frv. til bráðabirgða eru í samræmi við þetta.

Í 3. gr. samkomulagsins, sbr. 7. gr. frv., er fjallað um gildissvið aðalkjarasamnings og sérkjarasamninga. Gildissvið aðalkjarasamnings er víkkað, en gildissvið sérkjarasamninga þrengt frá því sem nú er. Um aukatekjur og hlunnindi, sem líkt er farið um, skal ákveðið með reglugerð.

Í 4. gr., sbr. 8. gr. frv., segir að aðalkjarasamningur skuli gilda skemmst í 24 mánuði, uppsagnarfrestur skuli skemmstur vera þrír mánuðir, lögbundinn endurskoðunarréttur með gerðardómi eða verkfallsrétti fylgi ekki aðalkjarasamningi.

Í 5., 6. og 7. gr. samkomulagsins, sbr. 16. gr. frv., er fjallað um meðferð sérkjarasamninga. Þeim fylgir ekki verkfallsréttur og ganga þeir til úrskurðar kjaranefndar ef ekki næst samkomulag milli aðila. Kjaranefnd skipa 5 menn: 3 tilnefndir af Hæstarétti, einn tilnefndur af heildarsamtökum starfsmanna og einn af fjmrh. Verkefni kjaranefndar er nánar tilgreint í VI. kafla frv.

8. gr. fjallar nm samstarfsnefnd sem aðilar skulu beina til einstökum deilumálum.

9. gr. fjallar um verkfallsheimildina og tekið fram að hún nái aðeins til aðalkjarasamnings. Í 10. gr. eru taldir upp þeir einstakir starfsmenn sem óheimilt er að gera verkfall, en þeir eru einkum æðstu embættismenn dómsvalds og ákæruvalds, stjórnsýslu og sáttasemjarar, allir starfsmenn Alþingis, skrifstofu forseta Íslands, forsrn., utanrrn. og ýmsir forstöðumenn ríkisstofnana og staðgenglar þeirra. Þessi upptalning er þó alls ekki tæmandi.

Í 14. gr. eru almenn ákvæði um að skylt sé að halda uppi nauðsynlegri öryggisgæslu og heilsugæslu þrátt fyrir verkfall. Sérstök n., kjaradeilunefnd, ákveður hvaða starfsmenn skuli starfa í verkfalli. Kjaradeilunefnd skal skipuð 9 mönnum og er skipunartími n. 4 ár. Formaður skal skipaður af Hæstarétti, tveir kjörnir af Sþ., þrír skipaðir af fjmrh. og þrír valdir af heildarsamtökum launþega. N. getur skipt vinnuskyldu milli starfsmanna, en verkefni hennar er að sjá til þess að verkfall stofni ekki öryggis- og heilsugæsluþjónustu við borgarana í hættu.

Ég vil taka það fram að þetta meginmarkmið varð ekki að ágreiningsefni milli aðila, og vil ég sérstaklega benda á grein er formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Kristján Thorlacius deildarstj., ritaði í síðasta tölublað Ásgarðs, blaðs BSRB, þar sem tekið er fram að það sé stefna Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sem leggja beri sérstaka áherslu á að þrátt fyrir verkfall verði haldið uppi nauðsynlegri öryggisgæslu og heilsugæslu.

Í 11. gr. draganna segir hvernig ákveða skuli kjör þeirra starfsmanna sem taldir eru upp í 10. gr. Aðalreglan er sú að náist ekki samkomulag um kjör þessara starfsmanna á kjaranefnd að úrskurða þau. Um þetta er fjallað í V. kafla frv. Þó er gert ráð fyrir að kjör hæstaréttardómara, ríkissaksóknara, sáttasemjara ríkisins og þeirra, sem eru utan vébanda heildarsamtaka, verði ákveðin einhliða af kjaranefnd. Í þessu sambandi vil ég taka fram að þar sem margir þeirra, sem taldir eru upp í 10. gr. samkomulagsins, eru utan vébanda Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, þar af margir innan Bandalags háskólamanna, en geta þó orðið félagar í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, var talið rétt að taka upptalninguna upp í lög nr. 38 1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en ekki inn í lagafrv. þetta, sem einungis snýr að Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Frv. í þessa veru hefur þegar verið samið og liggur fyrir hv. Alþ. í tengslum við þetta frv.

Í 1. gr. frv. er tekið fram að lögin taki ekki til hæstaréttardómara, saksóknara ríkisins, ráðh. og bankastarfsmanna, og gildir það þótt þeir séu félagsmenn í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja.

í 12. gr. draganna segir að boðun verkfalls fari samkv. samþykktum heildarsamtaka.

Í 13. gr., sbr. 15. gr. frv., segir að kjaradeila skuli ganga til sáttasemjara ríkisins eigi síðar en mánuði fyrir lok uppsagnarfrests og skuli hann þá kveðja tvo menn með sér að sáttum. Í 14. gr., sbr. III. kafla frv., er ákvæði um framkvæmd verkfalls. Verkfall skal boða með skemmst 15 daga fyrirvara. Verkfall má ekki hefja fyrr en sáttatillaga hefur verið felld. Sáttanefnd skal leggja fram sáttatillögu a.m.k. 5 sólarhringum fyrir lok verkfallsboðunarfrests. Þegar sáttatillaga hefur verið lögð fram getur sáttanefnd frestað verkfalli í allt að 15 daga. Eftir að verkfall er hafið getur sáttanefnd ávallt komið fram miðlunartillögu. Sáttatillaga eða miðlunartillaga telst felld ef yfir 50% greiddra atkv. eru á móti henni, enda hafi yfir 50% atkvæðisbærra ríkisstarfsmanna greitt atkv. Annars telst till. samþykkt. Sáttanefnd stjórnar atkvgr. og talningu og úrskurðar endanlega um öll vafaatriði.

Í 16. gr., sbr. IX. kafla frv., eru ákvæði um trúnaðarmenn. Ákvæði frv. um trúnaðarmenn eru efnislega shlj. ákvæðunum í gildandi samningum aðila um réttarstöðu og skyldu trúnaðarmanna.

Í 17. gr. draganna, sbr. 45. gr. frv., er fjallað um viðurlagsákvæði. Gert er ráð fyrir að brot geti varðað stöðumissi, sektum eða varðhaldi.

Í 18. gr. draganna segir að breytt verði ákvæðum um fjármögnun lífeyrisréttinda lífeyrisþega í hinum verðtryggðu lífeyrissjóðum starfsmanna ríkisins. Lífeyrissjóðirnir verði skyldaðir til að ávaxta 30% af heildarútlánafé sínu í verðtryggðum skuldabréfum ríkissjóðs. Miðað verði við að ríkissjóður ábyrgist og greiði einungis þann hluta lífeyrisins sem lífeyrissjóðir sjálfir geta ekki risið undir með tekjum sínum af vöxtum og verðbótum af ofangreindum verðtryggðum lánum. Gert er ráð fyrir að félmrh. ákveði nánar með reglugerð sambærilegar reglur um lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að lög um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna verði endurskoðuð og breytt til samræmis við þetta, a.m.k. að því er varðar þá sjóðfélaga sem eru félagsmenn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og frv. þetta tekur til.

Ég hef nú rakið efnisatriði samkomulagsdraganna frá 1. apríl s.l. Eins og fram er komið er lagafrv. það, sem hér liggur fyrir, á þeim byggt og frv. efnislega shlj. drögunum svo langt sem þau ná. Ég tel þó rétt að rekja í stuttu máli efni einstakra kafla frv. Að öðru leyti vísa ég til aths. við frv.

I. kafli frv. fjallar um það til hvaða starfsmanna það nál, um fyrirsvar starfsmanna við gerð kjarasamninga og rétt starfsmanna til að verða aðilar að Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Aðalbreytingin frá I. kafla núgildandi kjarasamninga er sú, að frv. tekur einungis til starfsmanna innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og starfsmenn Alþingis geta nú fallið undir lögin ef þeir eru félagar í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja.

Í II. kafla er fjallað um gildissvið kjarasamninga, uppsögn kjarasamninga, uppsagnarfrest og hvernig ljúka skuli ágreiningi um sérkjarasamninga. Í 17. gr. er ákvæði þess efnis að aðilar kjarasamnings beri fébótaábyrgð á samningsrofum sem þeir sjálfir eða lögmætir fulltrúar þeirra gerast sekir um í störfum sínum fyrir þá og um takmörkun á aðfararheimild í ákveðnum eignum aðila. Grein þessi er efnislega shlj. 8. gr. laga nr. 80 1938, um stéttarfélög og vinnudeilur.

Í III. kafla frv. eru ákvæði um verkfallsrétt Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, framkvæmd hans og takmarkanir á honum. Í 4. tl. 20. gr. er sérstaklega tekið fram að samúðarverkföll séu óheimil.

Í IV. kafla eru ákvæði um skyldur starfsmanna til að halda uppi nauðsynlegri öryggis- og heilsugæslu, svo og ákvæði um kjaradeilunefnd. Í 2. mgr. 27. gr. er kveðið á um að neiti Bandalagið eða fjmrh. að nefna menn í kjaradeilunefnd, eða menn þeir, sem nefndir hafa verið, neita að starfa, skuli þeir 3 nm., sem kjörnir eru af Alþ. og Hæstarétti, nefna menn í n. þannig að hún verði fullskipuð.

V. kafli fjallar um þá einstaka starfsmenn sem óheimilt er að gera verkfall og hvernig ákveða skuli kjör þeirra, og hef ég áður komið að því.

VI., VII. og VIII. kafli fjalla um skipan kjaranefndar og starfssvið, um félagsdóm, úrskurðarvald og afskipti hans af deilumálum aðila og um samninganefndir starfsmanna og starfsnefndir og rétt starfsmanna borgar, bæjar- og sveitarstjórna til að fá samningsrétt samkv. lögum, en um þau atriði setur félmrh. reglugerð. Ákvæði þessara kafla eru að mestu leyti óbreytt frá ákvæðum núgildandi kjarasamningalaga um sama efni og þarfnast ekki sérstaklega skýringa.

IX. kafli frv. fjallar um trúnaðarmenn, val þeirra, réttindi og skyldur. Ákvæði þessi eru nýmæli í kjarasamningalögum, en byggð á ákvæðum í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur frá 1938 og samkomulagi sem gert hefur verið við Starfsmannafélag ríkisstofnana um trúnaðarmenn. Greinarnar skýra sig að öðru leyti sjálfar.

Í frv. er gert ráð fyrir að ákvæði þessi taki gildi 1. júlí 1977, sbr. þó ákvæði til bráðabirgða, þar sem segir að ákvæði II. og VI. kafla og VIII. kafla skuli, eftir því sem við á, gilda um sérkjarasamninga sem gerðir verði í framhaldi af aðalkjarasamningi frá 1. apríl s.l. Ef gerð sérkjarasamninga, sem nú stendur yfir, verður ekki lokið fyrir 1. júní n.k., skal kjaranefnd samkv. H. kafla taka deiluna til meðferðar og ljúka úrskurði um ágreiningsefni fyrir 1. júlí n.k. og gildir þá úrskurður hennar sem samningur frá 1. júlí n.k. Aðalkjarasamningi er hins vegar fyrst heimilt að segja upp miðað við 1. júlí 1977, og taka önnur ákvæði laganna gildi í samræmi við það. Kjaradeilunefnd samkv. IV. kafla frv. skal þó skipuð og taka til starfa eigi síðar en 1. jan. 1977.

Við Bandalag háskólamanna náðist ekki samkomulag um breytingar á kjarasamningalögunum að þessu sinni og nær frv. því ekki til félagsmanna þess. Lög nr. 46/1973, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og lög nr. 33/1916, um verkfall opinberra starfsmanna, gilda því áfram um félagsmenn BHM. Ástæður fyrir því, að ekki náðist samkomulag við Bandalag háskólamanna, voru einkum þær að þeir töldu sig ekki geta sætt sig við tveggja ára samning án sérstaks endurskoðunarréttar á samningstímanum og töldu upptalningu á þeim, sem undanþegnir eru verkfallsrétti, vera of viðtæka, en auk þess taldi Bandalag háskólamanna nauðsynlegt að fram færi heildarendurskoðun laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins jafnhliða kjarasamningalögunum.

Af ríkisvaldsins hálfu er þó fullur vilji til að halda áfram viðræðum við fulltrúa Bandalags háskólamanna og mun verða stefnt að því að finna viðunandi lausn á deilumálum aðila fyrir 1. júlí 1977 er allir geti við unað. Þá munu samningsréttarmál Sambands ísl. bankamanna að öllum líkindum koma til athugunar á næstunni, en frv. þetta tekur ekki til þeirra.

Með frv. þessu, ef að lögum verður, er stigið nýtt skref í kjarasamningamálum opinberra starfsmanna. Hér er um að ræða skref er markar þáttaskil í samskiptum ríkisins og BSRB. Krafan um verkfallsrétt er jafngömul samtökum starfsmanna hins opinbera þótt hún hafi ekki verið lögfest að neinu leyti fyrr en gert er ráð fyrir því nú. Af hálfu ríkisvaldsins hefur kröfu um verkfallsrétt jafnan verið mætt með kröfu um sjálfstæðari samningsgerð opinberra starfsmanna og afnámi þeirra sérstöku réttinda sem opinberir starfsmenn hafa haft umfram aðra launþega.

Með árunum hefur dregið úr þeirri sérstöðu sem opinberir starfsmenn hafa haft og einkum hefur fólgist í verðtryggðum lífeyri og æviráðningu. Annars vegar hafa aðilar vinnumarkaðarins náð samkomulagi um verðtryggingu lífeyris þeirra launþega sem eru í lífeyrissjóðum innan ASÍ, og hins vegar hafa stjórnvöld í vaxandi mæli ráðið starfsmenn með gagnkvæmum uppsagnarfresti. Með samkomulagi því, sem liggur til grundvallar lagafrv. þessu, er gert ráð fyrir að dregið verði enn úr þeirri sérstöðu sem opinberir starfsmenn hafa haft um ráðningarform og fjármögnun lífeyrisréttinda sinna. Afstaða ríkisstj. til þessa frv. réðst þó ekki síður af því að verkfallsréttur sá, sem það fjallar um, er háður skynsamlegum takmörkunum. Í fyrsta lagi er verkfallsrétturinn einungis á hendi heildarsamtaka til stuðnings kröfum um aðalkjarasamning sem gildir skemmst í tvö ár, en ekki sérkröfur einstakra hópa. Í öðru lagi er óheimilt að hefja verkfall nema áður hafi verið felld sáttatill. í atkvgr. sem a.m.k. helmingur atkvæðisbærra starfsmanna ríkisins hefur tekið þátt í. Í þriðja lagi er verkfallsboðunarfrestur 15 dagar og sáttanefnd hefur heimild til að fresta verkfalli í aðra 15 daga. Öll þessi atriði eiga að tryggja það að ekki sé gripið til verkfallsvopnsins nema að vel yfirveguðu ráði og að undangenginni almennri könnun á vilja starfsmanna þar sem krafist er lýðræðislegrar lágmarksþátttöku. Síðast, en ekki síst er í frv. ákvæði um að tryggja borgurunum nauðsynlega öryggis- og heilsugæsluþjónustu þótt til verkfalls komi.

Eins og ég gat um áðan, áttu sér stað ítarlegar viðræður í vetur og vor við fulltrúa Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um mál þetta, og að lokum tókst fullt samkomulag. Mörgum mun sjálfsagt óa við því skrefi sem ætlað er að stiga með þessu lagafrv. ef að lögum verður. En ég leyfi mér að vona að það skref sé í rétta átt og verði bæði opinberum starfsmönnum og ríkisvaldinu og þjóðinni allri til heilla.

Virðulegi forseti. Ég leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.