13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4212 í B-deild Alþingistíðinda. (3620)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Út af þessari aths. er mér ljóst að ég vakti sérstaka athygli á því að þetta mál yrði ekki til umr. á dagfundinum í dag með því að segja að málið væri tekið út af dagskrá þar til síðar á fundinum. Slíkt er ekki óalgengt, enda forseta heimilt samkvæmt þingsköpum að breyta röð mála.