14.05.1976
Efri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4331 í B-deild Alþingistíðinda. (3645)
236. mál, skotvopn
Frsm. (Ingi Tryggvason):
Herra forseti. Allshn. hefur rætt á nokkrum fundum frv. til l. um skotvopn, sprengiefni og skotelda sem nú er til 2. umr. hér í hv. Ed. Leitað var umsagna um frv. þetta og bárust umsagnir bæði frá Félagi ísl. stórkaupmanna og Skotfélagi Reykjavíkur. Umsagnir þær, sem komu frá Félagi ísl. stórkaupmanna, hnigu í þá átt að verslun með vörur þær, sem frv. fjallar um, væri gerð nokkru örðugri en brýnasta ástæða væri til að þeirra dómi og gerðu till. um að nokkuð yrðu rýmkuð ákvæði í sambandi við verslun með skotvopn. Allshn. ræddi þessar umsagnir, en tók ekki upp í brtt. sinar, sem fluttar eru á sérstöku þskj., nein af þeim atriðum sem komu fram í umsögn Félags ísl. stórkaupmanna. Þá kom mjög ítarleg umsögn frá Skotfélagi Reykjavíkur og í brtt, þeim, sem nú eru fluttar af allshn., er tekið verulegt tillit til þeirra hugmynda, sem þar koma fram.
Mér þykir rétt að gera hér í örfáum orðum grein fyrir þessum brtt.
Í fyrsta lagi er brtt. við 5. gr. þar sem gert er ráð fyrir því að þeir, sem hafa skotvopnaleyfi, megi hlaða skothylki í þau vopn sem þeir hafa leyfi fyrir. Það kom fram bæði í umræddu bréfi frá Skotfélagi Reykjavíkur og eins af tali nm., sem eru þessum málum meira og minna kunnugir, að algengt væri að skothylki væru hlaðin og menn spöruðu sér mikið fé með því, og að athuguðu máli þótti n. rétt að bæta þessu atriði við 5, gr.
Þá er gerð ofurlítil brtt. við 13. gr. þannig að merking hennar verði gleggri eins og hún er orðuð nú, en efnismunur er ekki. Það kom m.a. fram í umsögn sem n. barst að menn höfðu misskilið þessa gr., en reynt er með þessari breytingu að koma í veg fyrir að sá misskilningur endurtaki sig.
Við 18. gr. er sömuleiðis gerð breyting. Hún er um það hverjum megi lána skotvopn, og orðast þá fyrsti hluti 18. gr. svo:
„Eigendum skotvopna er óheimilt að selja, gefa eða afhenda á annan hátt skotvopn nema þeim sem leyfi hafa til að nota sams konar skotvopn“ o.s.frv. Þar er sem sagt gert ráð fyrir að heimilt sé að lána mönnum, sem hafa sams konar skotvopnaleyfi, vopn sín.
Og loks er við 20. gr. bætt atriði þar sem gert er ráð fyrir að öllum þeim, sem eru undir áhrifum áfengis, sé óheimil meðferð skotvopna.
Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja meira um þetta mál að svo stöddu. Nm. voru sammála um að mæla með samþykkt frv. með þessum breytingum, en hafa þó áskilið sér rétt til að flytja brtt, eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma.