14.05.1976
Efri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4333 í B-deild Alþingistíðinda. (3650)
197. mál, opinberar fjársafnanir
Frsm. (Ingi Tryggvason):
Herra forseti. Frv. til l. um opinberar fjársafnanir hefur verið rætt á nokkrum fundum allshn. og leitað umsagnar dómsmrn. um efni frv. Allshn. mælir einhuga með því að frv. verði samþykkt, en gerir jafnframt till. um nokkrar smávægilegar breytingar.
Helstu breytingarnar eru þær, að það er fellt niður að gera ráð fyrir ákveðinni upphæð í sambandi við tilkynningarskyldu um að reikningsyfirlit yfir fjársöfnunina sé til sýnis og gert ráð fyrir að um það verði sett reglugerð. Enn fremur er því bætt við, að ef ekki liggi fyrir gögn um notkun söfnunarfjár þegar reikningi er lokið, þá skuli endurskoðandi síðar gefa skýrslu þar um. Enn fremur er styttur nokkuð 3. liður 8. gr., þar sem talað er um að lög þessi gildi ekki um fjársafnanir á samkomum.
Ég held að það sé ekki ástæða að halda langa ræðu um þetta mál. Menn eru sammála um, að nauðsynleg sé lagasetning um þetta efni, og telja að með þessu frv. sé stigið skynsamlegt spor í þá átt að fullnægja þeirri þörf.