14.05.1976
Neðri deild: 110. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4335 í B-deild Alþingistíðinda. (3655)

115. mál, íslensk stafsetning

Karvel Pálmason:

Hæstv. forseti. Ég er þeirrar skoðunar að öll meðferð þessa máls hér á hv. Alþ. sé síður en svo til þess fallin að auka veg og vegsemd löggjafarsamkomunnar. Ég hef ekki tekið efnislega þátt í umr. um þetta mál. Ég ætla mér ekki heldur að taka þátt í atkvgr. um þetta mál og mun því ekki greiða atkv.