14.05.1976
Neðri deild: 110. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4355 í B-deild Alþingistíðinda. (3689)

58. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta frv. er í hefðbundnu formi. Það hefur gengið í gegnum hv. Ed. Er lagt til að 55 mönnum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Ég vænti þess að hv. allshn. þessara d. hafi unnið með allshn. Ed. að þessu frv. Ég leyfi mér að mælast til þess að frv. verð að umr. þessari lokinni vísað til 2. umr og hv. allshn.