17.05.1976
Efri deild: 116. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4397 í B-deild Alþingistíðinda. (3768)

90. mál, lántökuheimild til eflingar Landhelgisgæslunni

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið til meðferðar frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. að taka lán til eflingar Landhelgisgæslunnar. Hér er um að ræða lánsfjárheimild til kaupa á einni flugvél af gerðinni Fokker Friendship og einnig til að greiða viðgerð á varðskipinu Óðni sem fór fram í Danmörku á s.l. ári. N. hefur orðíð sammála um að mæla með að frv. verði samþ. eins og það kom frá Nd., en fjarverandi afgreiðslu málsins var Albert Guðmundsson.