17.05.1976
Neðri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4416 í B-deild Alþingistíðinda. (3817)

132. mál, dýralæknar

Frsm. (Þórarinn Sigurjónsson):

Hæstv. forseti. Landbn. hefur rætt á fundum sínum frv. þetta til l. um breyt, á l. nr. 31 frá 5. maí 1974, um dýralækna, sem hér liggur fyrir. Hefur n. kynnt sér frv. og umsagnir um það og er öll n, sammála um að leggja til að frv. verði samþ. óbreytt eins og það var samþ. í Ed.