17.05.1976
Efri deild: 118. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4469 í B-deild Alþingistíðinda. (3885)

115. mál, íslensk stafsetning

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég hef hlýtt á mál hv. síðasta ræðumanns eins og aðrir hv. þdm. Auðvitað er það rétt að forseti hefur ekki rétt, hvorki í þessari d. né hv. Nd., til þess að kveða upp augljóslega ranga úrskurði. En það stendur sem ég sagði áður, að forseti Nd. hefur endanlegt úrskurðarvald um málsmeðferð í Nd. og forseti Ed. um málsmeðferð í Ed.