17.05.1976
Neðri deild: 112. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4485 í B-deild Alþingistíðinda. (3918)

192. mál, jafnrétti kvenna og karla

Vilborg Harðardóttir:

Forseti. Að felldum öðrum brtt., sem ég flutti hér við 2. umr., bið ég um afbrigði til að flytja brtt. við 6. gr. núna skriflega þar sem svo skammt er síðan 2. umr. fór fram. Brtt. er um það að úr 6. gr. falli orðin „og betri“. Ég hef áður gert grein fyrir því að mér finnst óeðlilegt að gert sé upp á milli starfa og sum séu dæmd „betri“ og önnur „verri“. Ég leyfi mér að leggja þessa brtt. fram og bið um afbrigði.