18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4518 í B-deild Alþingistíðinda. (4071)

141. mál, samkomulag við Belgíu um veiðar innan fiskveiðilandhelgi

Frsm. meiri hl. (Guðmundur H. Garðarsson):

Herra forseti. Utanrmn. fjallaði um till. til þál. um staðfestingu á samkomulagi við Belgíu um heimildir til veiða innan fiskveiðilandhelgi Íslands. Meiri hl. mælir með því að þáltill. verði samþ., en minni hl., Gils Guðmundsson og Gylfi Þ. Gíslason, mun skila séráliti.