18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4521 í B-deild Alþingistíðinda. (4086)

131. mál, takmörkun þorskveiða

Frsm. (Jón G. Sólnes):

Herra forseti. Atvmn. Sþ. hefur haft til afgreiðslu till. þá sem hér er til umr. um takmörkun þorskveiða. N. varð sammála um svo hljóðandi nál.:

„Þar sem mál þetta er til meðferðar hjá rn. eða stofnunum sjávarútvegs og hafrannsókna leggur atvmn. til að málinu verði vísað til ríkisstj “

Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru Guðmundur H. Garðarsson, Gils Guðmundsson og Karvel Pálmason.