18.05.1976
Efri deild: 122. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4524 í B-deild Alþingistíðinda. (4098)

254. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Í tilefni af þeim umr. sem um þetta mál hafa farið fram hér í hv. d. og einkum hafa snúist um skipun stjórnar Fiskveiðasjóðs Íslands, þá vildi ég láta það koma hér fram að ríkisstj. hefur ákveðið að taka til endurskoðunar skipun stjórna fjárfestingarlánasjóða og fjárfestingarlánakerfisins. Ég vænti þess að með tilvísun til þessa geti hv. dm. fallist á frv. eins og það liggur nú fyrir.