18.05.1976
Neðri deild: 119. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4574 í B-deild Alþingistíðinda. (4171)

Starfslok neðri deildar

Karvel Pálmason:

Hæstv. forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka óskir forseta okkur til handa og ég vil óska honum og hans fjölskyldu svo og starfsfólki þingsins öllu góðs sumars með þökk fyrir veturinn. Ég vil sömuleiðis taka undir óskir hæstv. forseta um það að við hittumst hér öll heil að hausti, og ég vil biðja hv. þm. að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]