18.05.1976
Efri deild: 127. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4579 í B-deild Alþingistíðinda. (4182)

Starfslok efri deildar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Með því að þetta er síðasti þingfundur hv. Ed. að þessu sinni þar sem nú er ákveðið að þinglausnir fari fram á morgun vil ég nú, þegar fundum d. lýkur störfum, nota tækifærið til þess að þakka ykkur, hv. þdm., fyrir samveruna á þessu þingi, sem nú er að ljúka, og ánægjulega samvinnu. Ég vil þakka skrifurum d. fyrir ágætt starf og varaforsetum fyrir þá aðstoð sem þeir hafa veitt mér sem forseta. Skrifstofustjóra Alþ. og öðru starfsliði Alþ. svo og þingfréttariturum færi ég bestu þakkir fyrir ágæta samvinnu. Nú þegar leiðir skilja óska ég öllum utanbæjarþm. góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og ég vænti þess að við hittumst allir heilir á komandi hausti þegar Alþ. kemur saman á ný.