19.05.1976
Sameinað þing: 95. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4612 í B-deild Alþingistíðinda. (4229)

Þinglausnir

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar alþm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég vil jafnframt þakka honum fyrir gott samstarf við okkur alþm. og fyrir góða og réttláta fundarstjórn. Gott samstarf forseta við alþm. er alltaf þýðingarmikið og fyrir það ber að þakka. Ég óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegs og góðs sumars um leið og ég þakka fyrir hinn liðna vetur. Ég bið hv. alþm. að taka undir þessi orð mín til forseta með því að rísa úr sætum. —-[Þm. risu úr sætum.]