25.11.1975
Sameinað þing: 20. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (432)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 21. nóv. 1975.

Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta setið þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistaleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Björn Jónsson forseti Alþýðusambands Íslands, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ragnhildur Helgadóttir,

forseti Nd.

Ég leyfi mér að biðja kjörbréfanefnd að rannsaka kjörbréf Björns Jónssonar og verður gefið fundarhlé í 5 mín. á meðan rannsókn á kjörbréfi fer fram. Fundi er frestað í 5 mín.

— [Fundarhlé.]