25.11.1975
Sameinað þing: 20. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (437)

25. mál, húsnæðismál

Fyrirspyrjandi (Axel Jónsson):

Forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. hans svör og láta í ljós þá von að það takist, að finna lausn á þessu máli, — lausn sem allir aðilar geta við unað og hv. Alþ. getur samþ.

Til viðbótar við það, sem ég áður gat um, herra forseti, vil ég vitna til þess að saga íslendinga sannar að íslendingum eru í blóð bornir alveg frábærir tjáningarhæfileikar. Efast ég ekki um að þegar kvikmyndalistgreinin þróast muni það og koma fram þar.