15.10.1975
Neðri deild: 6. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í B-deild Alþingistíðinda. (44)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 14. okt. 1975.

Samkvæmt beiðni Péturs Sigurðssonar, 8. þm. Reykv., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindagjörðum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 2. varamaður hans, Gunnar J. Friðriksson iðnrekandi, taki um hríð sæti hans á Alþingi.

Virðingarfyllst,

Þorv. Garðar Kristjánsson

ritari þingflokks sjálfstæðismanna.“

Ég býð Gunnar J. Friðriksson velkominn til starfa í þingdeildinni.