03.12.1975
Efri deild: 17. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (592)

81. mál, skemmtanaskattur

Flm. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 86 flytjum við fjórir þm. Alþb. í þessari hv. d. frv. til l. um breyt. á lögum um skemmtanaskatt. Þetta frv. er flutt í beinum tengslum við frv. á þskj. 87 um breyt. á lögum um Byggingarsjóð aldraðs fólks. Þar er um eitt og sama mál að ræða. Ég hef nýlokið við að gera grein fyrir þessu máli í heild og sé því ekki ástæðu til þess að fjalla frekar um þetta frv. undir þessum dagskrárlið.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn.