03.12.1975
Neðri deild: 20. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 990 í B-deild Alþingistíðinda. (618)
57. mál, eignarnámsheimild Ness í Norðfirði
Tómas Árnason:
Herra forseti. Ég tek eftir því að það er sennilega þarna villa í brtt. frá félmn. þar sem vitnað er til l. nr. 61 sem eiga að vera líklega frá 1917. Ég vildi aðeins skjóta þessu að til athugunar áður en málið yrði endanlega afgreitt. En það er ekki ætlun mín að hefja neinar efnisumr. um þetta mál. Ég vildi aðeins af hálfu okkar flm. málsins, hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar, Sverris Hermannssonar og mín þakka n. fyrir það hve fljótt hún hefur athugað frv. og afgr. það frá sér, en hún mælir einróma með því að það verði samþ.