08.12.1975
Efri deild: 19. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (642)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Mér hefur borist eftirfarandi bréf :

„8. des. 1975.

Þar sem Einar Ágústsson utanrrh. er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Sverrir Bergmann læknir, taki sæti á Alþ. í fjarveru hans.

Formaður þingflokks Framsfl.

Þórarinn Þórarinsson“.

Með því að Sverrir Bergmann hefur setið áður á Alþ. á þessu kjörtímabili þarf ekki að rannsaka kjörbréf og gengur hann því beint til starfa og býð ég hann velkominn.