09.12.1975
Sameinað þing: 30. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (664)
308. mál, endurskoðun laga um skipan opinberra framkvæmda
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Sem svar við fsp. hv. 7. landsk. þm. vil ég veita eftirfarandi upplýsingar:
Fyrir nokkru, en þó eftir að þessi fsp. kom hér fram á Alþ., ritaði ég hv. fjvn. og óskaði eftir því að fjvn. Alþ. tæki að sér endurskoðun á þeirri löggjöf sem hér um ræðir. Í bréfi þessu var jafnframt óskað eftir því að samráð yrði haft við fjárlaga- og hagsýslustofnun ríkisins svo og samtök sveitarfélaga, til þess að þeir aðilar, sem með mál þessi fara, geti komið á framfæri þeim upplýsingum sem ástæða er til að komi í sambandi við endurskoðun á þessari löggjöf. Þess var jafnframt óskað í fyrrnefndu bréfi, að endurskoðun þessi færi fram með þeim hraða að hægt væri að leggja fram á Alþ. því er nú situr hugmyndir að breytingum á þessari löggjöf, ef ástæða þykir til að breyta henni, og fengju þm. því tækifæri til þess að skoða þær till. áður en þingi lyki í vor, hvort sem þær þá næðu fram að ganga.
Fjvn.-menn eru að hálfu þingsins kunnugastir þessu og ég taldi því eðlilegast og réttast að óska eftir því að fjvn. tæki að sér þessa endurskoðun. Í fjvn. eiga sæti fulltrúar allra þingflokka, þannig að það geta allir komið að þeim sjónarmiðum sem þeir óska.