15.12.1975
Efri deild: 28. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í B-deild Alþingistíðinda. (921)
121. mál, almannatryggingar
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja umr. svo að nokkru nemi. Ég vil aðeins láta það koma fram hér strax við 1. umr. að ég tel þetta algjör bráðabirgðaúrræði, t. d. með tilliti til þess að þetta gengur á móti því sem sveitarstjórnarmenn vilja stefna að. En til þess að leysa málið nú til bráðabirgða um eins árs skeið, þá get ég fyrir mitt leyti fellt mig við þessa lausn málsins.
Ég skal ekki fara að ræða neitt um það hvort haft hafi verið samráð við heildarsamtök sveitarfélaga, Samband ísl. sveitarfélaga. Ég hins vegar minni á það, að þegar stórfelldar og það varanlegar breytingar á tekjustofnalögum hafa verið gerðar, hafa þær máske verið gerðar án þess að samráð væri haft við Samband ísl. sveitarfélaga. Vísa ég þar til þeirra miklu breytinga sem gerðar voru á tekjustofnalögunum 1972. En hér er fyrst og fremst um bráðabirgðaatriði að ræða í mínum huga og með tilvísun til þess get ég stutt þetta. Ég lít svo á að framkvæmdin á þessu verði af hálfu sveitarfélaganna einfaldari en var þegar sett var á 1% viðlagasjóðsgjald, sem var mjög flókið og erfitt í framkvæmd fyrir sveitarstjórnarskrifstofurnar. Hér hins vegar fylgir þetta 1% og þær tekjur, sem af því hljótast, þeim lækkunum eða niðurfellingu sem sveitarstjórnirnar ákveða á útsvörum, gagnstætt því sem var um viðlagasjóðsprósentuna, og sveitarfélögin greiða ekki af þessu annað en það sem þau innheimta af sínum gjaldendum. Þarna er verulegur munur á frá því sem var í sambandi við 1% til Viðlagasjóðs á sínum tíma og olli miklum erfiðleikum í framkvæmd og uppgjöri áður en lauk milli Viðlagasjóðs og sveitarfélaganna.
Þarna er minnst á og er lagt til að taka upp mánaðarlegar greiðslur til sjúkrasamlaganna. Ég vit ekki setja mig á móti því og tel að það sé eðlilegt að í samskiptum og þá ekki síst samskiptum ríkisins og sveitarfélaganna verði þessi háttur tekinn upp á sem flestum sviðum. Þegar lögin um tónlistarskóla fóru hér í gegnum þessa hv. d. á síðasta Alþ., þá einmitt var það vegna breytingar menntmn. þessarar deildar að ákvæði kom inn í lögin að greiðslur ríkissjóðs skyldu vera mánaðarlegar. Ég held að það sé mjög til bóta, að það verði ríkjandi stefna að þessir aðilar inni sínar greiðslur af hendi mánaðarlega, í þessu tilviki sveitarsjóðirnir, af þeim upphæðum sem þeir innheimta af þessu 1%, og svo á þeim flestum sviðum öðrum þar sem ríkið á að fjármagna rekstur í samvinnu við sveitarfélögin, að þá greiði ríkið sinn hlut mánaðarlega. Þetta eru orðnar stórar upphæðir sem um er að ræða, að það er ákaflega þýðingarmikið fyrir sveitarstjórnirnar.
Ég vildi, herra forseti, strax koma þessu að við 1. umr. málsins, að þó að þetta frv. gangi gegn því sem sveitarstjórnarmenn í meginatriðum vilja ná fram, þá lít ég á þetta sem algjöra bráðabirgðaráðstöfun, og í trausti þess að þetta verði aðeins í gildi þetta eina ár, þá styð ég framgang frv. í þeirri mynd sem það er hér fram lagt.